|
|
18.04.2006 15:32:43 / elsa
Endilega kommenta og
segja hvor síðan er að gera sig?
Elsa Margrét
»
17.04.2006 14:02:24 / elsa

17. Apríl 2006
Nú er annar í
páskum, ég var svo heppin að fá 2 páskaegg  þau voru nú sammt
falin þannig ég þurfi að leita af þeim.. en ég var nokkuð fljót að
finna þau, hinsvegar var bróðir minn fljótur að finna annað sitt en
það tók hann 12 klukkutíma
leit að leita af seinna páskaegginu og hann var orðinn nett
pirraður, hehe!
Hinsvegar voru 2 böll um páskana annað með móti sól í miðgarði og
annað á blöndósi með í svörtum fötum... ég fór bara á firra ballið
bara nennti ekki að fara á seinna var ekki í neinu stuði þannig það
var bara kósý kvöld heima með spólu og nammi.. ég hafði líka list á
páskaegginu mínu á sunnudaginn í staðinn fyrir að liggja í
þynku!
Afhverju þarf allt alltaf að líða svona hratt.. ég tek mjög líklega
bílprófið núna á miðvikudaginn og ég get ekki sagt að ég sé búin að
vera dugleg að læra.. ég ætla nú sammt að læra í dag og á morgun..
annað væri ekki hægt! Svo á hann Gummó minn afmæli á morgun, fer
hann þá á 30aldurinn eða hann verður réttara sagt 21 árs gamall 
og svo á ég afmæli viku eftir honum!
Lag dagsins ; Reyklausa liðið
Gleðilega Páska
Elsa - finndu nördan í sjálfum
þér!
»
05.04.2006 12:10:17 / elsa
21 dagur
Það styttist 21 dagur í afmælið.. bílprófið! sjæs´n.
ég hef ekki verið dugleg að blogga, en ég fer að henda inn myndum
af þessu grímupartýi sem var örugglega fyror langa löngu.. svo
skylst mér að það sé annað þema party í vændum, lýst vel á
það
Ég er búin að fara í klippingu og
litun.. og getiði hvað, rauði lokkurinn er horfinn! ég get heldur
ekki sagt það að ég sakna hans. Allir svona 
Mig langar til þess að eiga peninga! kannski ég fari að kaupa mér
lotta miða, maður getur ekki unnið nema þess að spila með.. ætla að
kaupa mér svona áskrift!
Ætti maður að halda uppá
afmælið eða bara gleyma því?
Hvernig lýst ykkur að myndirnar
þarna efst, nokuð fínt
Lag dagsins; Placebo - Infa-Red
Elsa - stækkar
óþfluga!
»
19.03.2006 17:38:07 / elsa
Vil byrja á því að syrgja það að
Staupasteinn (cheers) er nú úr sögunni og Sverrir og
Þráinn báðir fluttir út. -leiðó
Þá er helgin búin og á fimmtudaginn átti Hansi afmæli en hélt
reyndar uppá'ða á barnum á föstudaginn, það var feikna fjör og ég
skemmti mér bara ágætlega.. fór sammt snemma heim eftir afmælið því
allir voru á leiðinni niðrá bar og ég nennti bara ekki að bíða
þangað til að hann lokaði til að geta haldið áfram að djamma svo
var smá teiti heima hjá Andreu á fimmtudaginn! takk fyrir mig. Þið
getið skoðað myndir frá afmælinu HÉR!

Hér er afmælisbarnið, voðalega sátt með kvöldið
Á laugardaginn var ég að vinna í skeffó, og við
gummi ákváðum að leggjast bara í sukkið það kvöld og endaði það með
því að ég missti mig í snakk kaupinu og keipti 3 poka
svo er ég líka búin að setja inn myndir frá árshátíðarhelginni og
þið getið skoðað þær HÉR
Helgi: Hvernig setur maður
kolsiríngu í tánk fullan af bjór?
Snorri: Nú, þú lætur bara mann síga ofaní tánkinn
og hann prumpar bara á fullu. - Þetta meikar ekki sens
*had to be there moment?*
Lag dagsins; Seether - Fine again
Elsa - Panda
»
16.03.2006 11:49:17 / elsa
wtf?
Jæja (hata að byrja blogg á jæja) þá er ég ekki búin að blogga í
næstumþví mánuð og það er eiginlega helmingi of lengi ef ekki meira
þannig ég verð að henda aðeins hérna inn. Árshátíð FNV er búin og
var þar Úff of á móti sól að spila, man eiginlega ekki eftir
áms en úff var allavegana að standa sig
Það voru einhverjir gríslingar úr Árskóla að sníkjast inná árshátíð
FNV, sem mér finnst í lagi ef þau áttu kærasta/kærustu í þessum
skóla en "rotturnar" (afsakið orðabragðið) sem áttu ekki "maka"
þarna hefðu bara átt að bíða eftir sinni eigin árshátíð og ekki
vera að sníkjast inná aðrar.. (punktur)
Okeyyy


Svoo er það djamm í kvöld!, feikna fjör og svo líka
annaðhvort laugardaginn eða föstudaginn líka. það verður bara að
koma í ljós! eruð þið ekki til í smá bjór sull og
ógeðslegheit ?
það er að fara að verða soldill tími síðan ég djammaði almennilega
er búin að vera svo stillt undafarið!
Elsa - game í koktelboð
»
19.02.2006 19:39:13 / elsa
Ég
vil byrja þetta blogg með því að lísa gleði minni á því að
Silvía Nótt komst áfram og keppir nú fyrir okkar hönd í
Eurovision! svo ætla ég að benda á það að ég er búin að
henda inn helling af myndum; Afmæli
Tomma! og RVK ferðin í
jan. voða gaman, svo fór ég í
grímubúningainnflutningspartý til JónHauks, Silju og Evu í gær
sem var geðveikt gaman.. allir í voða flottum og fínum
búningum.. ætli ég hendi ekki líka myndum af því inn við
tækifæri!
(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
(x) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum
gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala
um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(x) hringt símahrekk
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti
Lag dagsins; R.E.M - Everybody
hurts
Elsa
»
14.02.2006 19:03:46 / elsa
  Já
í dag er Valentínusardagur!
Hvorki meira né minni, voða sætt allt saman.. En hérna já.. ég
er búin að henda inn eitthvað af þessum handboltamyndum og svo
2 myndbönd.. allt að ske, Svo um helgina hélt hann Tommi súper
uppá afmælið sitt sem var feikna fjör.. fullt af myndum teknar
á nokkrar vélar meira að segja þannig þær fara bráðum að koma
inn þegar ég er nenni að vera svoo dugleg
okkkar liðsmenn að meikaða svipbrygðin í
hámarki! svo keppum við um 3 sætið á fimmtudaginn ef ég er ekki að
plata.. ef ég er að plata þá er það á miðvikudaginn.. eða
réttarasagt morgun!
Ég veit ekkert hvað ég er að segja
það var bara svoo ótrúlega langt síðan ég bloggaði seinast að ég
ákvað að skella inn einni færslu.. Prófin fara að byjra í næstu
viku! mér líst ekkert á það.. sammt er ég bara í 5 prófum, sammt
kvíður mér meria fyrir lokaprófunum því að þá þarf ég að taka 9
próf... ekki spennt! en ég nenni ekki að tala um skólan mér finnst
sjálfri ekkert spennó að lesa blogg um skólann!
Lag dagsins; Pixies - Hey
Elsa - villtu þiggja þessa
rós?
»
05.02.2006 11:09:57 / elsa
Þunnudagur!
já það er þunnudagur! Ég var edrú á
föstudaginn.. langaði bara ekkert til að djamma  en ég varð nú að
kíkja út í gær! fór til Binna Bombu, þar sem hann átti að vera að
halda ábæjarparty en ég held að það hafi verið virkilega 4 sem unnu
á ábæ.. skondið! og auðvitað tók ég myndir! þið getið skoðað þær
HÉR , það var feikna fjör og ég ætla bara að þakka fyrir mig.
takk. heyrðu svo gerði ég líka annað.. ég tók video, það er
eitthvað nýtt og þið getið skoðað það HÉR! allt svo gaman, reyndar
er myndin doldið dökk en þið getið séð hana stærri með því bara að
tvíklikka á'ana...
Smá sýnishorn!
Svo komst Silvía Nótt áfram.. flott
það! hún fékk alveg heil 3 athvæði frá mér, þetta bara verður að
gerast að hún komist í eurovision! talandi um hana þá var ég spurð
að því í skaffó um daginn hvort að ég væri silvía nótt.. ég fór á
hlæja, við erum ekki baun líkar... þetta var pottþétt bara útaf
hárinu! svo var það líka annar maður sem ætlaði að fara með mig
uppá sjúkrahús því að það blæddi úr hausnum á mér. klikkað lið!
maður er nú sammt farin að sjá þennan rauða lit í fleiri kollum
heldur en bara á mér, tískubylgja!
lag dagsins; Marty Casey - Trees
Elsa -
Nagli!
»
03.02.2006 15:38:51 / elsa
áfengi?
nei ekki í kvöld, en á morgun já game? ég er
að fara að vinna á morgun þannig það er pottþétt allt að gerast um
helgina! það er alltaf svoeliðis. hinsvegar þá tók ég engar myndir
af þorrablótinu ekki nema kannski svona tvær svo bara varð allt
svart!... hehh ágætt þorrablót svosem en hinsvegar þá koma hingað
inn myndir síðan úr reykjavíkurferðinni sem var farið fyrir
"stuttu".. hann Tommi tók víst fullt af myndum og ætlar að vera svo
góður að láta mig fá það.
Silvía nótt í eurovision? er það að virka, hún allavegana er að
fara í undankeppnina eins og allir vita.. og ef þið viljið hlusta á
lagið með henni ýtið þá HÉR. maður fær þetta lag svoldið á
heilann!
svo voru Desperate Housewifes að byrja aftur í gær, sería 2! svoo
spennandi ég held að ég geti ekki misst úr einum þætti af þessu!
alltof spennandi. alla malla!

Það er handbollta mót í skólanum sem byrjar næsta
mánudag held ég ef ég hef rétt fyrir mér.. ætti að vera feikna
fjör, efast samt um að okkar lið fái að taka þátt vegna þess að við
erum blendingjar haha. þetta væri nú soldið fyndið, liðið heitir
Fjalla læmingjarnir og samanstendur af þeim úrvalsDÖMUM; Ásdís
köggull, Elsa Nagli, Andrea Skrúa, Þrainnía Þruma, Sverra Súper,
Kalla Klúra og Binna Bomba.
við látum nú sammt sjá okkur og fylgjumst með leikjunum þó að við
séum ekki að keppa sjálf.. maður verður að vera virkur í
félagslífinu!
lag dagsins; Pink Floyd - Wish you where here!
Elsa - Elding
»
26.01.2006 20:16:12 / elsa
Skautar?
þá er þessari blessaðri skautaferð lokið... þetta var ansi
skrautlegt! held að við getum öll sagt það. við stelpurnar byrjuðum
frekar snemma að "fá okkur" kannski svona 12 - 12:30! skrópaði í
sögu gat bara ekki farið frá sukkinu.. mætti sammt í
uppeldisfræði eftir það um svona 3 leytið.. voða hress tilbúin að
fara á skauta.haha.
Þegar við komum á akureyri var brunað strax á skauta og ég er að
segja ykkur það að það var engin pissupása
á leiðinni til ak þannig það fyrsta sem við gerðum var að losa
blöðruna! svo fórum við á skauta.. ég held að ég ætti ekki að vera
á lífi eftir þessa ferð ég lá gjörsamlega á svellinu allan tíman,
geðveikt fyndið ég bara gat ekki staðið upp! Ekki reyna að fara í
"svona" ástandi á skauta, ég get lofað ykkur því að það á ekki
eftir að ganga vel! *ég er blá og marin* svo toppaði það
allt þegar ég sá andreu detta 4 sinnum einn hring.. það var eins og
bíó að horfa á hana + það að hún var með hjálm! haha!
Svo fórum við í bíó á mynda The Fog sem er
ógeðslega leiðinleg, ég var farin að hlæja þetta var svo
heimskulegt!
Tók myndir í þessari ferð og þær eru kannski
ekkert allar uppá sitt besta... verðið að sýna því tillitsemi að ég
gat ekki haldið jafnvægi en þið getið skoðað myndirnar HÉR

hahaha það var nokkuð gaman í þessari skautaferð! svo verður bara
myndavélin tekin með á þorrablótið næsta laugardag!
Lag dagsins; Radiohead - True Love Waits
Elsa - Iceprincess 
»
24.01.2006 18:39:45 / elsa
"þú ferð á klúbba
þarna úti, og það eru allir að jacka. Fólk er auðvitað ekkert
vant þessu ennþá. þú veist... jackið er ekki komið
hingað''
- Ég er dugleg. fór þrisvar að hlaupa og lyfta í seinustu viku
og ég ætla að reyna að vera dugleg að halda í við þetta.. ætli
maður hafi ekki gott af því að fá að sprikkla smá svona annað
slagið.?
Hinsvegar þá var seinasta helgi róleg þannig lagað séð, ég fékk mér
sammt bjór bæði kvöldin var reyndar að vinna á laugardaginn en ég
var líka komin snemma heim á föstudaginn.. svo var það bara rúntur
á laugardaginn... En allavegana þá er ég að fara á þorrablót á
Hofsósi næstu helgi og ég ákvað að bjóða stelpunum með mér
sukkið heldur áfram!
Einnig vil ég benda á að að við höfum fundið út hvað Ásdís er..
Fulli sullarinn og á það mjög vel við nú á bara
eftir að finna "viðurnefni" á Andreu.. það kemur við gott
tækifæri!
Á morgun er svo skautaferð til akureyrar og ég
held að það séu um 120 búnir að skrá sig.. þetta verður meiriháttar
og hvet ég alla til að koma, ég er allavena viss um að ég ætla að
taka með mér myndavél og svo líka á þorrablótið þannig þið getið
verið dugleg að fylgjast með!!

lag dagsins; Radiohead - Karma Police
Elsa - I AM smiling!
»
16.01.2006 17:36:47 / elsa
Sögur úr borginn!
Já það var sko heldurbetur brunað til borgarinnar um helgina eða
réttara sagt á föstudaginn eftir skóla (eða svona næstum, skrópaði
í sögu) Helgi og Tommi náðu einhvernvegin að plata mig að koma með
þeim.. það var strax opnað bjór skal ég segja
ykkur! auðvitað reyndi ég að halda í við þessar fyllibyttur alla
leiðina suður og endaði það ekki betur en svo að leið og ég stóð
upp fyrir sunnan og við vorum að fara í teiti hjá dodda, labbaði ég
beint inn og lagði mig í leisíboj stólnum.. geggjað kósý vaknaði
sammt aftur eftir svona 2 tíma svefn og ég, Ásdís og Doddi elduðum
okkur pizzu! haha strákarnir kíktu í bæinn þannig við fórum að sofa
í rúmminu ömmu dodda.. geggjað gott rúm og við sváfum
ágætlega
Laugardagurinn fór í búðarráp og sukk....
hinsvegar laugardagskvöldið átti að vera rólegt og bara fara í bíó
og svona en hvernig sem við reynum fara helgarnar okkar alltaf í
fyllerí.. sama hvernig við reynum en þá bauð Doddi aftur heim
til sín sem endaði með því að hann datt á einhvern vasa og fékk
skurð á milli augabrúnanna sem var alveg eins og Harry
potter örið! hahaha ég hélt ég ætlaði aldrei að hætta að
hlægja að því! en hann fór uppá sjúkrahús til að láta sauma það því
að plásturinn sem hann setti hélt þessu ekki mikið lengur...
ætluðum niðrí bæ, búnar að redda skilrikjum en enduðum bara í
rúntiog svo heima í rúmmið - sváfum sammt voða lítið vegna
hringinga, því það var verið að reyna að plata okkur í gufu bað og
potta kl 6-10 um morguninn - við vorum ekki game!
Það var gert alltof mikið og ég var alltof full til að vera að
segja frá öllu, en ég var ekki með neina myndavél -
leiðó

-haha fann þessa mynd af hákoni, þetta er síðan um versló! æðisleg
mynd!
Lag dagsins í dag; Seal - Kiss From A Rose
Elsa - Fulla frekjan!
»
09.01.2006 17:41:09 / elsa
Allt að ske
Jæja já þá er þetta blessaða þrettándaball búið,
sem var svosem fínt og skemmti ég mér svona ágætlega.. hinsvegar
var ég með myndavélina og allt á fullu tíndi henni tvisvar en fékk
hana sem betur fer alltaf til baka, svo var ég búin að vingast við
konurnar í eldhúsinu þær leyfðu mér að geyma allt mitt verðmæta
áfengi inní ískáp þannig ég fékk alltaf ískaldan og góðan bjór..
sem var æðislegt, svo gáfu þær mér líka samloku eftir ballið....
hún var með skinku, en ég plataði sjálfa mig til að borða hana..
fann hvorteðer ekkert bragð
- það var ekkert að spara neitt á þessu balli! Blóð, sviti og tár -
slagsmál? jedúdda ef ekki það líka

ætli ég hafi ekki náð að grafa upp mynd af okkur frá seinasta
þrettándaballi hahaha

svo mynd núna frá þrettándaballinu, haha ég held að það eina sem
hefur breyst sé það að við séum orðnar fyllibyttur og kannski einum
of klikkaðar í hausnum.. er það ekki bara fínt?
Svo tók ég líka myndir eins og var búið að koma
fram hér á undan en þið getið skoðað þær HÉR svoo gaman allt saman
Binni þú ert lummó fyrir að hafa ekki
mætt
Lag dagsins; Pearl Jam - Black
Elsa - Dugnaðar bloggari!
»
06.01.2006 22:05:53 / elsa
Þrettándinn
Og þá er fólk byrjað að sprengja þessa óþolandi
flugelda upp aftur, gat þetta ekki bara verið búið um áramótin? Ég
er svo hrædd við þetta... okey þetta er fallegt að horfa á en að
mínu mati mæti alveg sleppa íííí-unum og Búmm-unum. Fyrir kannski 2
árum hætti ég að sprengja upp eftir það að bróðir minn náði að
plata mig út til að sprengja smá sem endaði með því að ég fékk einn
svona "flugeld" sprengju, eða hvað sem þú villt kalla þetta (svona
margar pínuponslitlar rauðar sprengjur saman) uppí annað nefið og
hún sprakk þar. ég var brjáluð. og hef ekki sprengt flugelda
síðan. 
Hinsvegar byrjaði skólinn í gær.. svosem alltí
góðu og við (Binni, Kalli Ég og Ásdís) til akureyrar í bíó og kaupa
alskonar tilgangslausa hluti td eins og hundrað og eitthvað segla,
gleraugu sem maður verður fullur á að láta á sig og nammi í hagkaup
fyrir 1000 kall En við fórum á myndina a little trip to
heaven sem var svosem ágæt eða allavegana miða við það að
þetta var íslensk mynd.. meira bara eins og langur þáttur?

Hérna erum við á okkar fyrsta áramótaballi haha
get sammt ómögulega fundið mynd af okkur síðan á seinasta 13da
balli!
Er 13da ball ekki máli? Ég er
game!
lag dagsins; Mugison - Murr Murr
Elsa - langar í bjór!
»
01.01.2006 22:52:55 / elsa
Gleðilegt nýtt ár

Lag ársins? segið þið mér!
Elsa - skál! ("plz villtu hella í glasið
aftuir?" )
»
Síður: 1 2
|
|